ÓPÍUM FÓLKSINS


Wednesday, July 07, 2004
Fluttur


Posted at 03:13 am by Freyr
Make a comment


Thursday, May 06, 2004
Latur

Ég nenni ekkert að blogga þessa dagana

Lifið heil

Posted at 04:47 pm by Freyr
Comments (6)


Thursday, April 29, 2004
Opið bréf til guðs

Kæri guð

Ef þú ert til þá væri ég til í að þú svaraðir nokkrum spurningum fyrir mig. Ég geri mér grein fyrir því að ef þú ert til þá hefur þú vafalaust mikið að gera en væntanlega ertu með einhverja aðstoðarmenn eins og ráðherrar hafa. Það er meinalaust af minni hálfu að þeir svari fyrir þig, að sjálfsögðu í samráði við þig. Ef þú ert til ertu vafalaust orðinn leiður á því að svara spurningum eins og af hverju verða stríð, af hverju er fólkt fátækt o.s.frv. Ég ætla því ekki að þreyta þig, ef þú ert til, á slíkum spurningum heldur á öðrum sértækari.

Spurning 1: Ef þú ert til, átt þú þá kirkjuna sem stofnun?

Spurning 2: Ef þú ert til, og átt kirkjuna, er það þá rétt skilið að fólkið eigi ekki kirkjuna?

Spurning 3: Ef þú ert til, og átt kirkjuna en fólkið ekki, hefurðu þá hugsað þér að skrá kirkjuna á hlutabréfamarkað?

Spurning 4: Ef þú ert til, og átt kirkjuna en hefur ekki hugsað þér að skrá kirkjuna á hlutabréfamarkað, af hverju ekki?

Spurning 5: Ef að þú ert til, og átt kirkjuna, af hverju í andskotanum (afsakaðu orðbragðið) þarf þá fólkið að borga allt sem að viðkemur þessari kirkju þinni?

Spurning 6: Ef þú ert til, hverning myndir þú bregðast við ef að ríkið tæki eignir þínar, svo sem Þingvelli, eignarnámi?

Spurning 7: Hefur þú fengið greiddan arð af eignum þínum?

Vonandi sérðu þér fært að svara þessum spurningum mínum. Það máttu gera hvort heldur sem er á opinberum vettvangi, hér á þessari síðu, eða með því að senda mér tölvupóst á netfangið freysi@hotmail.com ef þér finnst það þægilegra.

Með kveðju
Freyr Rögnvaldsson, trúleysingi

Lifðu heill

Posted at 02:35 pm by Freyr
Comments (9)


Wednesday, April 28, 2004
Gott mál

Þetta er auðvitað bara gleðilegt

Lifið heil

Posted at 02:27 am by Freyr
Comments (2)


Friday, April 23, 2004
Sumarið er komið

Sumardagurinn fyrsti var nýttur til útivistar í góðra vina hóp. Ég er heilbrigt ungmenni. Lifið heil

Posted at 01:30 am by Freyr
Comments (6)


Tuesday, April 20, 2004
Tíðindi

Bíllinn bilaður - og kominn í lag! I'm da master. Með góðri hjálp Fúsa reif ég ónýtt pústið undan og henti nýju undir. Þetta gerðist á innan við sólarhring. Oft hafa bílarnir mínir nú verið bilaðir lengur en það. Ég held barasta að það sé smitandi að eiga alla þessa vini sem eru alltaf að rífa bíla og gera við. Að vísu er nú ekkert sérstaklega erfitt að rífa undan púst, allavega ekki eftir að maður eignaðist DWT. Engu að síður er ég stoltur, já svo stoltur. 

Lifið heil 

Posted at 07:07 am by Freyr
Comments (6)


Friday, April 16, 2004
Andmælum nýrri útlendingalöggjöf


Posted at 02:51 am by Freyr
Make a comment


Thursday, April 15, 2004
Tilbreytingarleysi

Það er voða lítið að gerast eitthvað. Páskahátíð kristinna manna búin með sínum fermingum, súkkulaðivitfirringu og helgislepju. Ekkert framundan í bili nema sækja um skólavist, og láta tímann líða. Sumarfrí eru alltof fátíð Lifið heil

Posted at 01:36 am by Freyr
Comments (2)


Wednesday, April 07, 2004
Dómsmálráðherra fer offari - aftur!

Björn Bjarnason fer algeru offari þessa dagana, eins og stundum áður, í fjölmiðlum. Kærunefnd jafnréttismála komst að því að Björn hefði brotið lög þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson í embætti Hæstaréttardómara í stað Hjördísar Hákonardóttur. Í fjölmiðlaumræðu um málið að undanförnu hefur gjarnan verið hamrað á því að Ólafur þessi sé frændi Davíðs Oddsonar forsætisráðherra. Ekki ætla ég að halda því fram að þau vensl séu ástæðan fyrir ráðningunni og finnst mér sú umræða öll vera hin ógeðfelldasta.

Hitt er hinsvegar meira um vert að mínu mati að rýna í þau ummæli sem að Björn viðhefur um niðurstöðu kærunefndarinnar. Í viðtölum í fjölmiðlum hefur Björn lýst því yfir að kærunefndin hafi annað hvort komist að vitlausri niðurstöðu eða að sá lagarammi sem nefndin þarf að starfa eftir sé hið minnsta vitlaus. Það sé auðvitað ekki boðlegt á þeim tímum sem við lifum á nú sé það krafa að ráða þurfi konu í starf ef a) kven umsækjandi sé jafnhæf eða hæfari en aðrir umsækjendur, og b) færri konur séu starfandi innan stéttarinnar. Þetta séu forn vinnubrögð og samrýmist engan veginn þeim tímum jafnréttis sem við lifum á.

Nú er það svo að samkvæmt jafnréttislöggjöfinni eru þessi vinnubrögð, sem Björn kallar svo, lögfest. Það er ekki vegna þess að þeir sem settu lögin á sínum tíma hafi verið sárar kellingar, heldur er það svo að þeir sem settu lögin sáu lengra en Björn gerir nú. Konur hafa ekki riðið feitum hesti í embættisveitingum hjá ríki og sveitarfélögum (né í stjórnendastöðum einkafyrirtækja, ef út í það er farið) í gegnum  tíðina. Sem dæmi má nefna að 60% millistjórnenda hjá ríkinu eru karlmenn og um 84% forstöðumanna hjá ríkinu eru karlmenn.

Ef horft er á þessar tölur má velta því fyrir sér hverju sætir. Eru konur verri starfskraftar en karlar? Nei, ég trúi því tæplega að nokkrum manni detti slík firra til hugar. Í könnun árið 1998 gáfu ríkisstarfsmenn konum meira að segja heldur betri einkun en körlum sem stjórnendum (Starfsumhverfi ríkisstarfsmanna við aldahvörf, 1998).

Því tel ég að Björn sé einungis á aumkunarverðan hátt að reyna að verja ákvörðun sína sem augsýnilega var byggð á einhverju öðru en lögum. Í samanburði á hæfni umsækjendanna kemur fram að Hjördís hefur stundað bæði meira framhaldsnám og skrifað fleiri fræðigreinar en Ólafur (og hinir umsækjendurnir einnig). Það má því ljóst vera að Hjördís var hreinlega hæfasti umsækjandinn, burtséð frá kynferði. Röksemd Björns var sú að sérfræðiþekking Ólafs á Evrópulöggjöfinni vægi þyngra en menntun annara umsækjenda. Hinsvegar er það skýrt í lögum að slíka sérfræðiþekkingu má ekki nota sem röksemd nema því aðeins að umsækjendur séu að öðru leyti taldir jafnhæfir. Svo var ekki í þessu máli.

Þau ummæli Björns að kærunefndin sé tímaskekkja og hana eigi jafnvel bara að leggja niður eru í besta falli hroki en í versta falli alger óvirðing við stjórnsýslu og löggjöf Íslendinga. Það er mjög miður að fram í völlinn geysist menn í líki Björns og telji sig þess umkomna að meta það svo að jafnrétti kynjana á Íslandi sé í dag komið í svo góðan farveg að nú sé nóg komið og best sé að láta markaðinn nú ráða málum. Því miður er það vaninn að þegar að stofnanir á vegum ríkisins verða ráðamönnum þjóðarinnar (einkum innan Sjálfstæðisflokks) óþægur ljár í þúfu, þá er orðið stutt í að dagar þeirra séu taldir. Ég vona þó heitt og innilega að slík verði ekki raunin með Kærunefnd jafnréttismála.

Lifið heil

Posted at 04:21 am by Freyr
Comments (9)


Tuesday, April 06, 2004
Vonbrigði og skólagjöld

Ég sem var að vonast eftir því að stórfelldar deilur og svívirðingar væru í uppsiglingu á kommentakerfinu. Hvar ertu Haukur Logi? Hvar er Mátturinn og allir Frammararnir sem að eiga að styðja sinn mann? Og hvar eru allir sósíalistarnir sem að eiga að vera mér sammála og ráðast í offorsi og illsku að Hauki Loga? Haukur Logi er reyndar ágætur gaur, svona í persónu, að tala við um veðrið. Þetta eru samt mikil vonbrigði.
Fólk er að nöldra um linka og að sjálfsögðu veiti ég þeim slíkt með gleði. Njóttu vel Laufey og takk sjálf
Einn ganginn enn eru starfsmenn Háskólans að hvetja til upptöku skólagjalda. Það er ljóst að fólkið sem að á sínum tíma horfði á námslánin sín brenna upp í eldi verðbólgunnar hefur ekki mikla samúð með okkur bjálfunum sem að sækjum okkur menntun í dag. Greinin í Mogganum í dag eftir þá Þorstein Loftsson og Einar Stefánsson hefur að mínu mati ekkert nýtt fram að færa, þó að þeir reyni að draga broddinn úr vilja sínum til upptöku á skólagjöldum. Það stendur eftir sem áður óhaggað að Háskólinn er þjóðskóli og það er skylda ríkisins (bæði mórölsk og, enn sem komið er, lagaleg) að veita þeim fjármunum sem til þarf til stofnunarinnar. Það breytist ekkert.

Lifið heil

Posted at 11:30 am by Freyr
Comments (2)



Next Page












If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


Blogdrive