ÓPÍUM FÓLKSINS


Sunday, April 04, 2004
Fæðingarorlof og fleira

Ágæt grein í Mogganum í dag um Thule-málið. Meðal annars las ég þar að bótagreiðslan sem að var ákveðin í Eystri-landsrétti, og síðar staðfest í Hæstarétti Danmerkur, til handa íbúunum sem fluttir voru nauðungarflutningum var heilar 17.000 danskar krónur á hvern bótaþega. Ef að þetta er ekki til skammar þá veit ég ekki hvað. Gaman væri nú að vita á hvaða forsendum þessi fjárhæð byggir.
Lenti í því í gær að deila hart um jákvæða mismunun. Því miður er það staðreynd að margir þeir sem að tjá sig um hana hafa ekki minnstu hugmynd út á hvað jákvæð mismunun gengur. Tilfellið er hins vegar það að margir telja sig vera svo pólitískt rétt þenkjandi að ef að ákveðnar leiðir til að ná jafnræði heita nafni eins og þessu þá hljóta þær að vera vondar. Mismunun er nefnilega alltaf vond í þeirra huga. Synd og skömm.
McLaren menn eru í rugli þessa dagana. Það eina sem að er gaman við Formúluna í ár er að mér gengur þokkalega í liðstjóraleiknum. Frekar vildi ég nú samt sjá mína menn á palli. Djöfulsins Ferrari. Ítalska drasl.
Haukur Logi framsóknarblesi skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem að hann er að agnúast út í fyrirætlanirnar um að setja þak á greiðslur til einstaklinga úr fæðingarolofssjóði. Ég segi nú bara eins og Elli Þórarins, hver þarf að fá hálfa milljón á mánuði í fæðingarorlofsgreiðslur? Fyrir utan það þá fannst mér leitt að sjá af hversu mikilli óvirðingu Haukur talaði um þá sem að nýta sér fæðingarorlof. Hann segir það hljóti að vera freistandi fyrir karlmenn á háum launum að sleppa því að taka fæðingarorlof því að þeir tapi svo miklum peningum á því "að hanga heima og skipta um bleyjur í þrjá mánuði". Þetta finnst mér alveg makalaus málflutningur. Ekki lít ég svo á að þegar að því kemur að ég taki fæðingarorlof verði það til þess að hanga heima og skipta um bleyjur. Ég mun vilja fylgjast með barninu mínu og njóta samvista við það. Ef að Haukur byggir þetta á sínum skoðunum þá ráðlegg ég honum að vera ekkert að eignast börn. Þau eru ekki kvöð, þau færa gleði. Þeir sem að eru óánægðir með það að fá að vera heima með barni sínu með hálfa milljón í mánuði eru ekki miklir menn í mínum augum. Er það virkilega svo að við búum orðið í þjóðfélagi þar sem að Mammons dýrkunin og gróðahyggjan er orðin svo algjör að þetta sé skoðun ungs fólks? Það er aumt að mæla það verðmætasta sem að fólk getur eignast, börnin sín í krónum og aurum.

Lifið heil


Posted at 02:34 pm by Freyr
Comments (5)


Thursday, April 01, 2004
1. apríl er leiðindadagur

Ég nenni ekki að nöldra um hvað aprílgöbb fjölmiðlana eru ömurlega hallærisleg í ár. Því síður nenni ég að rembast við að koma með slíkt sjálfur.

Hverjum á maður að trúa? Er markaðssetning lambakjöts að hrista upp í Framsóknarflokknum, þeim arma kaffiklúbb? Auðvitað er hinsvegar rugl að dreifa kröftum sínum í margar áttir við markaðssetninguna. Styrkurinn frá ríkinu á að fara allur á sama stað.

Gaman að fá þær nýju fréttir að starfsemi Alþingis einkennist af hroðvirkni og tímaskorti. Þetta hafði manni nú ekki dottið í hug, eða hvað?

U-Beygjan er komin út. Gleði, gleði. Allir að tryggja sér eintak

Lifið heil

Posted at 05:34 am by Freyr
Comments (6)


Tuesday, March 30, 2004
Iðnaðarráðherra á villigötum

Las í Fréttablaðinu í dag að heildarútflutningsverðmæti dilkakjöts hefði aukist um 42 prósent milli áranna 2002 og 2003. Árið 2002 var verðmætið semsagt 477 milljónir en árið 2003 var það komið í 678 milljónir. Þetta sýnir hversu vitlaus málflutningur Valgerðar Sverrisdóttur hér á dögunum var þegar hún hélt því fram að útflutningur á lambakjöti væri óraunhæfur og ráð að setja peninga þá sem notaðir hafa verið í kynningu á íslensku lambakjöti erlendis í önnur verkefni. Á árunum 1998 til 2002 setti íslenska ríkið 35 milljónir króna í markaðs- og kynningarátak á lambakjöti erlendis. Þetta vil ég leyfa mér að kalla markaðsátak sem skilar árangri og hana nú.

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Gleðilegt er að sjá að þær stöllur, þingkonurnar Jóhanna Sigurðardóttir og Margrét Frímannsdóttir hafi lagt fram frumvarp til afnáms stimpilgjalda. Slík skattheimta er mörgum, einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum þung í skauti og kemur gjarnan verst niður á þeim sem erfiðasta fjárhagsstöðu hafa.

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Það er allt í rugli innan Háskólans. Það verður sífellt ljósara að það þarf að fara að taka verulega til þar  innan veggja. Síðast sást það á úrskurði Hæstaréttar sem að hnekkti úrskurði Héraðsdóms í máli Bjarna F. Einarssonar fornleifafræðings gegn dómnefnd þeirri sem að mat hæfni hans vegna starfsumsóknar sem kennara við Háskólann. Það er auðvitað ólíðandi að skorir og deildir innan Háskólans kjósi um hver hljóti embætti í fræðastöðum innan skólans. Slíkt veldur því að kosningarnar geta auðveldlega þróast út í einhverskonar vinsældakosningar og ekki er það nú beinlínis sú hugmynd sem að maður hefur um akademísk vinnubrögð. Ekki síður mátti sjá gallana á þessu fyrirkomulagi árið 1988 þegar að Hannes Hólmsteinn Gissurarson var ráðinn sem lektor við stjórnmálafræðiskor Háskólans. Burtséð frá því hvaða skoðun fólk hefur á þeirri ráðningu þá tel ég að ljóst megi vera að ef að þessi mál væru ekki unnin á svona viðvaningslegan hátt hefðu þær deilur aldrei komið til.

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Rökræður ungliðahreyfinganna á laugardaginn tókust ágætlega. Þó held ég að þær hefi ekki orðið neinum að gagni nema þeim sem fengu skólun í ræðumennsku við þetta tækifæri. Þeir sem mættu voru nánast eingöngu fólk sem að þegar hefur staðsett sig kyrfilega á pólitíska skalanum. Hvort að þeir sem enn eru óákveðnir hafa einhvern áhuga á að mæta á samkonar uppákomur og þessa veit ég ekki gjörla. Þó held ég að alltaf séu einhverjir sem að hafa áhuga á að mæta. Þeir mæta hins vegar ekki ef þeir vita ekki af fundum. Það er nauðsynlegt að auglýsa fundi sem þessa með mun markvissari hætti en gert var nú. Engu að síður var þetta ágætt og skemmtunin um kvöldið tókst þokkalega.

Lifið heil

Posted at 08:35 am by Freyr
Comments (6)


Tuesday, March 23, 2004
Pereat, Háskólarektor

Háskólafundur stóð í á fjórðu klukkustund og niðurstaðan varð engin. Það er í sjálfu sér gott miðað við það að ég bjóst fastlega við því að ályktun yrði beint til Háskólaráðs um að það skyldi fara fram á leyfi frá framkvæmdavaldinu til að innheimta skólagjöld. Hins vegar er ég drulluhræddur um að málinu hafi verið frestað fram í maí af þeirri ástæðu einni að þá verður vita vonlaust að draga stúdenta frá próflestri til að mótmæla. Hvaða ástæða önnur liggur fyrir þessum gjörningi? Ég kaupi það ekki í hálfa sekúndu að enn hafi svo margir verið óákveðnir. Þetta er kjaftæði og allir sjá það strax. Það breytist ekkert á nokkrum vikum hvort fólk vilji taka upp skólagjöld eða ekki. Þetta er grundvallarspurning sem gengur út á það að annaðhvort vill fólk jafnrétti til náms eða ekki. Slíkar skoðanir breytast ekki einn, tveir og þrír.

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það sé ekki rétt að hamast á Háskólanum sem stofnun fyrir vingulshátt í málefnum sínum, heldur miklu frekar þingheim. Með þessum heimskugangi innan Háskólans nú hefur skoðun mín breyst. Háskólinn er að berja af sér ákafa fylgismenn sína í stórum stíl þessa dagana og það verður ekki værðarlegt fyrir rektor að sitja á næstunni, það er mín trú. Hvernig dettur manninum líka í hug að móðga fólk á þennan hátt sem hann gerði þegar hann sagði að spurningin snerist ekki um það að taka upp skólagjöld heldur "að hafa möguleika á að taka upp skólagjöld". Hugsandi fólk lætur ekki bjóða sér svona vitleysu. Hey, ég ætla að láta leggja kalt vatn í nýbygginguna mína til að hafa möguleika á að fá mér að drekka. Þetta er endileysa og fyrir neðan virðingu okkar að þurfa að hlusta á málflutning sem þennan.

Pereat, Páll Skúlason

Lifið heil

Posted at 04:02 pm by Freyr
Comments (4)


Thursday, March 18, 2004
Mótmælum skólagjöldum

Allir sem að hafa snefil af siðferðiskennd eiga að drifa sig inn á þennan link og skrifa undir til að mótmæla skólagjöldum. Allir, hvort sem þeir eru stúdentar við HÍ eða staddir annars staðar í þjóðfélaginu eiga að slá skjaldborg um Háskólann og verja hann fyrir þessum fáránlega gjörningi sem við sjáum fram á að verði að veruleika.

Lifið heil

Posted at 08:18 am by Freyr
Comments (3)


Monday, March 15, 2004
Quisling

Horfði áðan á þátt á RÚV um Vidkun Quisling, norska landráða eða ekki landráðamanninn. Þó þátturinn hafi að mörgu leyti verið fróðlegur varð ég samt fyrir smá vonbrigðum með hann. Veit ekki alveg hvort það var vegna þess að hann var að stórum hluta á ensku en það allavega fór í taugarnar á mér. Ég er svo mikilli "nordisk sammarbete" aðdáandi að það var kannski ástæðan. Annars fannst mér hann líka málaður full ljósum litum í þættinum, talsvert meira var talað við gamla National samling félaga en við andstæðinga hans. Engu að síður má taka hattinn ofan fyrir RÚV fyrir að sýna uppfræðandi sjónvarpsefni í stað amerískrar lágmenningarfroðu.

Lifið heil 

Posted at 03:20 pm by Freyr
Comments (4)


Thursday, March 11, 2004
Ádeila

Steinunn systir er beitt í ádeilu sinni á alls konar ósóma trekk í trekk. Ég á sem sagt reiða, unga systur. Gott mál. Kíkið á hana.

Lifið heil

Posted at 03:14 am by Freyr
Comments (7)


Wednesday, March 10, 2004
Hreinsanir

Ákvað að feta í fótspor Myrkurs og hreinsa til. Um það verður ekki meira rætt. Þó er vel hugsanlegt að búast megi við frekari hreinsunum í framtíðinni.

Lifið heil

Posted at 02:08 am by Freyr
Comments (4)


Hroki og hleypidómar þingmanna II

Það er komin tími til að efna loforð um að skrifa um sljóleika og andfélagslega hegðun þingmanna á nýjan leik. Eins og áður er af mörgu að taka en þó er ekki úr vegi að leita nú til uppafsins, til rótanna í mínum pólitísku deilum við alþingismenn.

Það er vorkeimur í lofti og árið er 1995. Við erum stödd á Akureyri í aðdraganda Alþingiskosninga. Ungir menn spígspora um grösuga velli höfuðstaðar Norðurlands, staðráðnir í því að finna hina einu, réttu pólitísku sannfæringu. Hvort að það var genasamsetningin eða þrýstingur frá félögunum sem olli því að ég, sögupersónan sjálf, lenti inn á gafli í glerhýsi miklu sem hýsti kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins man ég ekki gjörla. Hitt man ég að er við gengum í sal kom á hraðferð á móti okkur kona ein sem tók okkur með kostum og kynjum. Kynnti hún sig sem Valgerði Sverrisdóttur, frambjóðanda þessa mæta flokks og vildi leiða okkur í allan skilning um hversu vænlegt það væri fyrir okkkur unga mennina að styðja Framsóknarflokkinn. Hún spurði okkur að nafni og aldri en þó fór nú að kárna gamanið. Kom þá í ljós að tveir okkar voru undir kosningaldri en sá þriðji var nokkuð ljóslega tengdur öðrum flokki sterkum böndum. Við þetta virtist sem sá mikli áhugi sem að koma okkar vakti í fyrstu dofnaði nokkuð, reyndar svo mjög að frambjóðandinn varð öll hin hrjúfasta og stuttaralegasta í framkomu. Stóðum við ekki lengi við á þessum stað en forðuðum okkur á brott.

Hvort að þessi leiðinda framkoma Valgerðar hafi haft varanleg áhrif á mig í þá átt að ég byggði upp andúð á Framsóknarflokkinum er ekki gott að segja. Ef til vill væri ég nú í liði með þeim Dagnýju og Birki ef ekki hefði komið til þessi kvöldstund í aðdraganda kosninganna 1995. Hitt veit ég að svona á ekki að koma fram við þegnana í landinu.

Lifið heil

Posted at 01:01 am by Freyr
Comments (1)


Saturday, February 28, 2004
Og þá dó þingheimur

Hef hugsað mér að hafa reglulega pistla um bjálfahátt þingmanna, eins og þennan hér fyrir neðan. Það er af ótrúlega miklu að taka, og þá á ég við persónulega reynslu en ekki bara helvítis vitleysuna sem að allir verða vitni að. Þetta gætu orðið vikulegi pistlar og heitið t.d.  Úr háum söðli að detta, Hroki og hleypidómar, Heimskra manna ráð eða eitthvað slíkt. Auglýsi hér með eftir undirtektum við þessar hugmyndir eða öðrum betri.

Lifið heil

Posted at 02:42 pm by Freyr
Comments (8)



Previous Page

Next Page












If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


Blogdrive