Entry: Vonbrigði og skólagjöld Tuesday, April 06, 2004



Ég sem var að vonast eftir því að stórfelldar deilur og svívirðingar væru í uppsiglingu á kommentakerfinu. Hvar ertu Haukur Logi? Hvar er Mátturinn og allir Frammararnir sem að eiga að styðja sinn mann? Og hvar eru allir sósíalistarnir sem að eiga að vera mér sammála og ráðast í offorsi og illsku að Hauki Loga? Haukur Logi er reyndar ágætur gaur, svona í persónu, að tala við um veðrið. Þetta eru samt mikil vonbrigði.


Fólk er að nöldra um linka og að sjálfsögðu veiti ég þeim slíkt með gleði. Njóttu vel Laufey og takk sjálf
Einn ganginn enn eru starfsmenn Háskólans að hvetja til upptöku skólagjalda. Það er ljóst að fólkið sem að á sínum tíma horfði á námslánin sín brenna upp í eldi verðbólgunnar hefur ekki mikla samúð með okkur bjálfunum sem að sækjum okkur menntun í dag. Greinin í Mogganum í dag eftir þá Þorstein Loftsson og Einar Stefánsson hefur að mínu mati ekkert nýtt fram að færa, þó að þeir reyni að draga broddinn úr vilja sínum til upptöku á skólagjöldum. Það stendur eftir sem áður óhaggað að Háskólinn er þjóðskóli og það er skylda ríkisins (bæði mórölsk og, enn sem komið er, lagaleg) að veita þeim fjármunum sem til þarf til stofnunarinnar. Það breytist ekkert.

Lifið heil

   2 comments

Ellan
April 7, 2004   11:05 AM PDT
 
Það eru ekki allir framsóknarmenn sammála Hauki Loga. Ég er ekki sammála hans skrifum um fæðingarorlofið. Finnst þetta þak vera nauðsynlegt og styð ríkisstjórnina í þessu máli
Myrkur
April 6, 2004   01:40 PM PDT
 
Ég veit hvar Mátturinn er. Hann er á síðunni minni og er afar viðskotaillur. :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments