Entry: Dómsmálráðherra fer offari - aftur! Wednesday, April 07, 2004



Björn Bjarnason fer algeru offari þessa dagana, eins og stundum áður, í fjölmiðlum. Kærunefnd jafnréttismála komst að því að Björn hefði brotið lög þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson í embætti Hæstaréttardómara í stað Hjördísar Hákonardóttur. Í fjölmiðlaumræðu um málið að undanförnu hefur gjarnan verið hamrað á því að Ólafur þessi sé frændi Davíðs Oddsonar forsætisráðherra. Ekki ætla ég að halda því fram að þau vensl séu ástæðan fyrir ráðningunni og finnst mér sú umræða öll vera hin ógeðfelldasta.

Hitt er hinsvegar meira um vert að mínu mati að rýna í þau ummæli sem að Björn viðhefur um niðurstöðu kærunefndarinnar. Í viðtölum í fjölmiðlum hefur Björn lýst því yfir að kærunefndin hafi annað hvort komist að vitlausri niðurstöðu eða að sá lagarammi sem nefndin þarf að starfa eftir sé hið minnsta vitlaus. Það sé auðvitað ekki boðlegt á þeim tímum sem við lifum á nú sé það krafa að ráða þurfi konu í starf ef a) kven umsækjandi sé jafnhæf eða hæfari en aðrir umsækjendur, og b) færri konur séu starfandi innan stéttarinnar. Þetta séu forn vinnubrögð og samrýmist engan veginn þeim tímum jafnréttis sem við lifum á.

Nú er það svo að samkvæmt jafnréttislöggjöfinni eru þessi vinnubrögð, sem Björn kallar svo, lögfest. Það er ekki vegna þess að þeir sem settu lögin á sínum tíma hafi verið sárar kellingar, heldur er það svo að þeir sem settu lögin sáu lengra en Björn gerir nú. Konur hafa ekki riðið feitum hesti í embættisveitingum hjá ríki og sveitarfélögum (né í stjórnendastöðum einkafyrirtækja, ef út í það er farið) í gegnum  tíðina. Sem dæmi má nefna að 60% millistjórnenda hjá ríkinu eru karlmenn og um 84% forstöðumanna hjá ríkinu eru karlmenn.

Ef horft er á þessar tölur má velta því fyrir sér hverju sætir. Eru konur verri starfskraftar en karlar? Nei, ég trúi því tæplega að nokkrum manni detti slík firra til hugar. Í könnun árið 1998 gáfu ríkisstarfsmenn konum meira að segja heldur betri einkun en körlum sem stjórnendum (Starfsumhverfi ríkisstarfsmanna við aldahvörf, 1998).

Því tel ég að Björn sé einungis á aumkunarverðan hátt að reyna að verja ákvörðun sína sem augsýnilega var byggð á einhverju öðru en lögum. Í samanburði á hæfni umsækjendanna kemur fram að Hjördís hefur stundað bæði meira framhaldsnám og skrifað fleiri fræðigreinar en Ólafur (og hinir umsækjendurnir einnig). Það má því ljóst vera að Hjördís var hreinlega hæfasti umsækjandinn, burtséð frá kynferði. Röksemd Björns var sú að sérfræðiþekking Ólafs á Evrópulöggjöfinni vægi þyngra en menntun annara umsækjenda. Hinsvegar er það skýrt í lögum að slíka sérfræðiþekkingu má ekki nota sem röksemd nema því aðeins að umsækjendur séu að öðru leyti taldir jafnhæfir. Svo var ekki í þessu máli.

Þau ummæli Björns að kærunefndin sé tímaskekkja og hana eigi jafnvel bara að leggja niður eru í besta falli hroki en í versta falli alger óvirðing við stjórnsýslu og löggjöf Íslendinga. Það er mjög miður að fram í völlinn geysist menn í líki Björns og telji sig þess umkomna að meta það svo að jafnrétti kynjana á Íslandi sé í dag komið í svo góðan farveg að nú sé nóg komið og best sé að láta markaðinn nú ráða málum. Því miður er það vaninn að þegar að stofnanir á vegum ríkisins verða ráðamönnum þjóðarinnar (einkum innan Sjálfstæðisflokks) óþægur ljár í þúfu, þá er orðið stutt í að dagar þeirra séu taldir. Ég vona þó heitt og innilega að slík verði ekki raunin með Kærunefnd jafnréttismála.

Lifið heil

   9 comments

Ausa
April 15, 2004   04:26 AM PDT
 
Ég neita að trúa að Mátturinn sé sammála þér! þú hlýtur að vera að gera ei-ð rangt hehe
Mátturinn
April 14, 2004   07:05 AM PDT
 
Er fullkomlega sammála þér. Skömm að þessu. Mannbjáninn ætti að segja af sér, hann er alveg viti sínu fjær.
letidýrið
April 10, 2004   09:43 AM PDT
 
Þessi Bjöddn Bjaddnason ætti bara að fá sér eiddn Napóleonshatt, heimsvaldasinninn sá arna. Ef öreigar allra landa sameinast ekki sem snöggvast, þá verður hann einvaldur yfir Íslandi.....
Ellan
April 7, 2004   03:44 PM PDT
 
Það er aldeilis að konan er stollt af þér Freyr, postar kommentinu þrisvar inn. Er samt mjög ánægður með þessa grein þína um hann Björn. Þvílík vitleysa sem Björn lét út úr sér. Jafnréttislögin eru nauðsyn.
Ausa
April 7, 2004   11:48 AM PDT
 
Rosalega ertu vel upp alinn. Gerir mig hrikalega stolta að vera gift öðrum eins femínista og mannvini
Ausa
April 7, 2004   11:48 AM PDT
 
Rosalega ertu vel upp alinn. Gerir mig hrikalega stolta að vera gift öðrum eins femínista og mannvini
Ausa
April 7, 2004   11:48 AM PDT
 
Rosalega ertu vel upp alinn. Gerir mig hrikalega stolta að vera gift öðrum eins femínista og mannvini
delmo
April 7, 2004   05:38 AM PDT
 
Grein Múrsins um málið í dag er raunar stórkostleg.
Myrkur
April 7, 2004   05:33 AM PDT
 
Björn Bjarnason er sjálfur einhver argasta tímaskekkja íslenskra stjórnmála! Viðbrögð hans sem þessi sem þú lýsir eru alveg hætt að koma á óvart enda hroki og hótanir gagnvart ríkisstofnunum og öðrum fyrir löngu orðin hans aðalsmerki í stjórnmálum.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments