|
Ef þú ert til þá væri ég til í að þú svaraðir nokkrum spurningum fyrir mig. Ég geri mér grein fyrir því að ef þú ert til þá hefur þú vafalaust mikið að gera en væntanlega ertu með einhverja aðstoðarmenn eins og ráðherrar hafa. Það er meinalaust af minni hálfu að þeir svari fyrir þig, að sjálfsögðu í samráði við þig. Ef þú ert til ertu vafalaust orðinn leiður á því að svara spurningum eins og af hverju verða stríð, af hverju er fólkt fátækt o.s.frv. Ég ætla því ekki að þreyta þig, ef þú ert til, á slíkum spurningum heldur á öðrum sértækari. Spurning 1: Ef þú ert til, átt þú þá kirkjuna sem stofnun? Spurning 2: Ef þú ert til, og átt kirkjuna, er það þá rétt skilið að fólkið eigi ekki kirkjuna? Spurning 3: Ef þú ert til, og átt kirkjuna en fólkið ekki, hefurðu þá hugsað þér að skrá kirkjuna á hlutabréfamarkað? Spurning 4: Ef þú ert til, og átt kirkjuna en hefur ekki hugsað þér að skrá kirkjuna á hlutabréfamarkað, af hverju ekki? Spurning 5: Ef að þú ert til, og átt kirkjuna, af hverju í andskotanum (afsakaðu orðbragðið) þarf þá fólkið að borga allt sem að viðkemur þessari kirkju þinni? Spurning 6: Ef þú ert til, hverning myndir þú bregðast við ef að ríkið tæki eignir þínar, svo sem Þingvelli, eignarnámi? Spurning 7: Hefur þú fengið greiddan arð af eignum þínum? Vonandi sérðu þér fært að svara þessum spurningum mínum. Það máttu gera hvort heldur sem er á opinberum vettvangi, hér á þessari síðu, eða með því að senda mér tölvupóst á netfangið freysi@hotmail.com ef þér finnst það þægilegra. Með kveðju Freyr Rögnvaldsson, trúleysingi Lifðu heill
|
| Name Tengdamamma October 17, 2004 06:07 AM PDT Ég segi nú eins og Guð myndi hafa sagt ef hann hefði á annað borð verið til: MIKIL ER TRÚ ÞÍN MAÐUR. | ||
| Henrik May 4, 2004 04:26 AM PDT Allt í góðu hér. | ||
| BB May 2, 2004 03:15 PM PDT Ég man ekki eftir að hafa gefið guði heimild til að tjá sig. Hann er útlendingur og þeir eiga að sitja og standa eins og ég segi. Reiði Davíðs hvílir yfir þér meðan dýrð Davíðs blasir við þér! | ||
| Guð May 2, 2004 08:59 AM PDT Kæri Freyr. Það er mér mikil ánægja að svara spurningum þínum. 1. Ég er ekki til og því á ég ekki kirkjuna, en þó ég væri til mætti hún nú bara eiga sig sjálf. 2. Nei, fólkið á örugglega ekki kirkjuna. Hún á sig sjálf, eða nokkrar prestafjölskyldur sem þar ráða öllu. 3. Nei, kirkjan verður örugglega ekki sett á hlutabréfamarkað því þá myndu prestarnir missa völdin yfir henni. 4. Þar sem ég er hvorki til né á kirkjuna skýrir þetta sig sjálft. 5. Vegna þess að prestarnir tíma því ekki sjálfir. Og bæðevei allt í lagi með andskotan ég er að skreppa í kaffi til hans á eftir. 6. Ég myndi fyrirgefa og sýna kærleika, eða láta rigna yfir þá eldi og brennisteini, er ekki alveg viss hvort. 7. Nei, þessir fokkerar hlunnfara mig gersamlega. Vona að þetta útskýri málið nógu vel. | ||
| BB April 30, 2004 06:25 AM PDT Það gefur völd að sinna pósthólfum horfinna og tilbúinna persóna. Okkur Dabba finnst völd góð - í okkar höndum. Deilum og drottnum. Keyrum á vegi valdahrokans! | ||
| Fraiser April 30, 2004 05:06 AM PDT Kæri Björn Ef guð er ekki til á hvers vegum ert þú þá þegar þú segist vera umboðsmaðurinn hans? | ||
| Steinunn April 29, 2004 06:37 PM PDT hehehehehe... Þú ert ágætur. Annars er ég ekki sammála þér með jákvæðu mismunina, meira um það á blogginu mínu undir sömu umræðu. | ||
| f.h. Guðs April 29, 2004 04:42 PM PDT Guð á ekki kirkjuna né neitt annað þar sem guð er ekki til. Ég er umboðsmaður Guðs og yfirmaður hans og annarra útlendinga á landinu. Ríkið á kirkjuna. Ríkið er ég og Dabbi vinur minn. Kveðja. Bjössi Bjarna | ||
| Elías Jón April 29, 2004 03:17 PM PDT Er Guð ekki með netfang? Ef hann er með það þá hlýtur hann að fá rosalega mikið af ruslpósti | ||
| Leave a Comment: |